|
Minnisvarði um Látra-Björgu afhjúpaður |
|
fimmtudagur, 10 júní 2010 |
|
Minnisvarði um Látra-Björgu var afhjúpaður við Útgerðarminjasafnið á Grenivík sl. laugardag er sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur. Björn Ingólfsson minntist sjókonunnar og skáldkonunnar Bjargar og Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri afhjúpaði listaverkið sem hannað var af Skiltagerð Norðurlands á Ólafsfirði.
Björg Einarsdóttir var fædd í Stærra-Árskógi 1716. Á sjötta ári kom hún í Látur með föður sínum, Einari Sæmundssyni stúdent, en varð eftir þegar hann flutti þaðan þremur árum seinna. Við Látur var Björg kennd síðan þótt hún ætti þar ekki heima nema fyrri hluta ævinnar, en hvergi átti hún fast heimili nema þar. Á Látrum sótti hún sjó með karlmönnum en var annars mest „sjálfrar sín" eins og það var kallað. Einhvern tíma um miðjan aldur fór hún á flakk og flæktist víða um sveitir norðanlands. Hún lést á vergangi að Ufsum í Svarfaðardal haustið 1784 og var jarðsett þar. Kunnust er Björg fyrir skáldskap sinn. Hún þótti níðskældin og var jafnvel talin ákvæðaskáld. Ýmsar vísur hennar eru kunnar eins og þessi sem hún orti er hún guðaði á glugga og baðst gistingar:
Æðir fjúk um Ýmis búk,
ekki er sjúkra veður.
Klæðir hnjúka hríð ómjúk
hvítum dúki meður.
|
|
Hátíðarhöld í tilefni sjómannadagsins |
|
fimmtudagur, 03 júní 2010 |
|
Hátíðarhöld í tilefni sjómannadagsins verða laugardaginn 5. júní á Grenivík. Sökum óhagstæðra sjávarfalla fellur siglingin niður í ár svo dagskráin hefst með guðsþjónustu á bryggjunni kl. 11:00. Að henni lokinni verður farið að minnisvarða látinna sjómanna í kirkjugarðinum og þeirra minnst í bæn og þökk. Skemmtidagskrá hefst á Hlaðnatúni við Grenilund kl. 14:00 þar sem ýmislegt skemmtilegt verður á boðstólum fyrir alla fjölskylduna. Kaffihlaðborð Kvenfélagsins Hlínar hefst kl. 15:30 í samkomuaðstöðunni í Grenivíkurskóla. Boðið verður upp á siglingu fyrir börnin á slöngubát björgunarsveitarinnar frá flotbryggjunni kl. 17:00 og þar verða grillaðar pylsur. Dagskránni lýkur með sjómannadagsballi í samkomuaðstöðunni sem hefst kl. 23:00. Hljómsveitin Gloría mun skemmta fram eftir nóttu. Grýtubakkahreppur óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn.
|
|
Úrslit sveitarstjórnarkosninga |
|
mánudagur, 31 maí 2010 |
|
Sveitarstjórnarkosningar í Grýtubakkahreppi eru óbundnar. Á kjörskrá voru 235 einstaklingar og var kjörsókn mjög góð sl. laugardag eða 77,45%. 182 atkvæði voru greidd, auðir seðlar 1 og ógildir 0. Allir sveitarstjórnarmenn gáfu kost á sér til áframhaldandi setu. Úrslit kosninganna urðu eftirfarandi:
Kjörnir aðalmenn
S. Jóhann Ingólfsson, bóndi, Stórasvæði 8
Jón Helgi Pétursson, framkvæmdastjóri, Ægissíðu 22
Fjóla Valborg Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Lækjarvöllum 10
Ásta Fönn Flosadóttir, skólastjóri, Höfða
Sigurður Bjarni Jóhannsson, framkvæmdastjóri, Lækjarvöllum 4
Kjörnir varamenn
1. Sigurbjörn Þór Jakobsson, lagerstjóri, Lækjarvöllum 2
2. Heimir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri, Túngötu 25
3. Jenný Jóakimsdóttir, þjónustufulltrúi, Túngötu 21
4. Guðni Sigþórsson, verkstjóri, Túngötu 19
5. Benedikt S. Sveinsson, húsasmiður, Ártúni
Nýkjörnum sveitarstjórnarmönnum er óskað til hamingju með kjörið.
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 19 - 21 af 350 |