Mánudagur 6. september
Ávarp sveitarstjóra
Um sveitarfélagið
Stofnanir
Nefndir og ráð
Fundargerðir
Gjaldskrár
Samþykktir og reglur
Ársreikningar
Eyðublöð
Ferðaþjónusta
Gisting
Veitingar
Afþreying
Ágúst 2010

Nú líður að því að skóli hefjist og vonandi koma allir kátir og glaðir undan sumrinu. Tveir nýir kennarar hafa verið ráðnir við Grenivíkurskóla eða þeir Þorgeir Finnsson og Stefán Guðnason en Stefán kemur til með að kenna íþróttir.  Eru þeir báðir boðnir velkomnir til starfa. Guðrún Árnadóttir og Edda Björnsdóttir eru í barnsburðarleyfi og Edda Línberg er farin til annarra starfa.

Allir pistlar
Morgunblaðið
Vísir
Svæðisfréttir RÚV
Veðurspá
Færð á vegum
Innanlandsflug
Símaskrá
Senda SMS
Leit á vefnum
 
Eldur í gamla bænum í Laufási
mánudagur, 14 júní 2010

laufas1Eldur kom upp í hlóðareldhúsi í gamla bænum í Laufási í Grýtubakkahreppi í gærkvöldi. Slökkviliðið á Grenivík var kallað á staðinn kl. 20:45 og var komið á staðinn rúmum 15 mínútum síðar. Tveir menn úr slökkviliðinu voru í Laufási þegar eldurinn kom upp og náðu þeir að rjúfa þekjuna og slökkva eldinn með slökkvitækjum og garðslöngum áður en slökkviliðið kom á staðinn.
Að sögn Guðna Sigþórssonar slökkviliðsstjóra á Grenivík urðu einhverjar skemmdir í gamla bænum en á þessu stigi er ekki hægt að segja til um hversu miklar þær eru. Rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri er komin á staðinn og fer með rannsókn málsins. Guðni sagði að samkvæmt því sem næst verður komist hafi hlóðareldhúsið ekki verið notað frá því um síðustu jól. Hann sagði að leitað hafi verið eftir aðstoð Slökkviliðs Akureyrar, þarf sem mikið er af þurru torfi í gamla bænum en að slökkviliðinu hafi verið snúið við eftir að búið var að ráða niðurlögum eldsins. (Frétt tekin af www.vikudagur.is).

Grenivíkurskóla slitið
fimmtudagur, 10 júní 2010

utskrift_2010Grenivíkurskóla var slitið mánudaginn 31. maí sl. í í þróttahúsinu á Grenivík. Í vetur voru 62 nemendur í Grenivíkurskóla og kennt var í fimm námshópum. Fjórir nemendur voru útskrifaðir úr skólanum, þ.e. þau Auður Sif Arnþórsdóttir, Jakob Þór Möller, Stefán Páll Þórðarson og Zak Valur Sigurbjörnsson. Þeim var öllum þakkað fyrir samstarfið á liðnum árum og óskað velfarnaðar í framtíðinni. Breyting verður á starfsliði skólans næsta vetur. Edda Línberg íþróttakennari lætur nú af störfum og er hennar starf nú auglýst laust til umsóknar. Anna Margrét Bjarnadóttir starfsmaður við íþróttamiðstöð lætur einnig af störfum og er hennar starf líka auglýst laust til umsóknar. Þær stöllur voru kvaddar með blómum og þakkað fyrir samstarfið. Edda Björnsdóttir er farin í fæðingarorlof og verður í því næsta skólaár, búið er að ráða Þorgeir Finnsson til að leysa hana af og Inga María Sigurbjörnsdóttir er komin úr fæðingarorlofi. Skólastjóri fór yfir skólastarf vetrarins og vakti m.a. máls á útiskólanum í vetur sem gekk vel og hvatti foreldra til að taka sér göngutúr með börnunum sínum upp í lundinn fyrir ofan reiðvöllinn og skoða afrakstur vinnu nemenda í vetur og á þemadögum nú í vor. Þar er búið að leggja stíga, smíða brú og fleira.

 

Snyrtilegt á sjómannadaginn
fimmtudagur, 10 júní 2010

p1010037Það er gleðilegt að segja frá því að þorpið Grenivík leit afar vel út, snyrtilegt og hreint á sjómannadaginn. Íbúar sem og starfsmenn Grýtubakkahrepps voru duglegir í síðustu viku við að slá garða og fegra umhverfið fyrir helgina. Hvergi var hægt að sjá rusl eftir grillveislur laugardagskvöldsins en þá kom fólk víða saman í görðum til að gleðjast í tilefni sjómannadagsins og fleiri tilefna. Það er virkilega ánægjulegt þegar fólk tekur höndum saman og hjálpast að við að fegra þorpið sitt og afraksturinn verður sem raun ber vitni. Íbúum er þakkað kærlega fyrir.

 

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 16 - 18 af 350

Gisting
Veitingar
Afþreying
 

5429477e36a05fDSCF0121.jpg
Skoða myndasafn

Allar tilkynningar
Allir viðburðir

Grýtubakkahreppur - Sími: 463-3159 - Fax: 463-3269 - Netfang: sveitarstjori@grenivik.is