Mánudagur 6. september
Ávarp sveitarstjóra
Um sveitarfélagið
Stofnanir
Nefndir og ráð
Fundargerðir
Gjaldskrár
Samþykktir og reglur
Ársreikningar
Eyðublöð
Ferðaþjónusta
Gisting
Veitingar
Afþreying
Ágúst 2010

Nú líður að því að skóli hefjist og vonandi koma allir kátir og glaðir undan sumrinu. Tveir nýir kennarar hafa verið ráðnir við Grenivíkurskóla eða þeir Þorgeir Finnsson og Stefán Guðnason en Stefán kemur til með að kenna íþróttir.  Eru þeir báðir boðnir velkomnir til starfa. Guðrún Árnadóttir og Edda Björnsdóttir eru í barnsburðarleyfi og Edda Línberg er farin til annarra starfa.

Allir pistlar
Morgunblaðið
Vísir
Svæðisfréttir RÚV
Veðurspá
Færð á vegum
Innanlandsflug
Símaskrá
Senda SMS
Leit á vefnum
 
Ferðaþjónusta í Ártúni
mánudagur, 28 júní 2010

artun_wideHjónin í Ártúni þau Benedikt Sveinsson og Kristín Sigurðardóttir hafa opnað ferðaþjónustu í Árúni, Ártún ferðaþjónusta. Þar er bæði  heimagisting og tjaldstæði. Boðið er upp á 3 notaleg 2ja manna herbergi(þar af eitt 2-4 manna) á sérhæð. Öll herbergin eru nýstandsett með vönduðum rúmum. Setustofa með sjónvarpi er á hæðinni og sér snyrting með sturtu. Morgunverður, í veitingaskála á neðri hæð,er  innifalinn. Á tjaldstæðinu er góð aðstaða með rafmagni, nægt pláss er fyrir tjöld, fellihýsi, húsvagna og húsbíla. Góð hreinlætisaðstaða, snyrtingar með sturtu og inniaðstaða er fyrir fólk til að matast. Seyrulosun er á staðnum. Möguleiki er á þráðlausri internettengingu. Vínveitingar eru í boði í veitingaskálanum í Ártúni. Rýmið er nánast óendanlegt og gefur því þeim sem það vilja, kost á að vera vel út af fyrir sig. Opnunartími tjaldstæðisins er frá 15. maí - 15. september, eða eftir nánara samkomulagi. Hægt er að nálgast allar frekari upplýsingar á nýrri glæsilegri heimasíðu ferðaþjónustunnar www.artun.is.

 

Kvennahlaup ÍSÍ 19. júní
þriðjudagur, 15 júní 2010

kvennahlaup_logo21. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á sjálfan Kvennréttindadaginn 19. júní.  Það er því við hæfi að tileinka hlaupið í ár krafti og elju íslenskra kvenfélaga. Með samstöðu, áræðni og dugnaði hafa kvenfélagskonur á Íslandi hrint í framkvæmd fjölmörgum  framfara- og velferðamálum fyrir samfélagið.  Fyrir 80 árum stofnuðu þær Kvenfélagasamband Íslands,  KÍ, sem sameiningar og samstafsvettvang kvenfélaganna í landinu. Undir merkjum KÍ starfa þúsundir kvenna á öllum aldri og mynda þannig keðju góðra verka og vináttu. Hlaupið verður frá Íþróttamiðstöðinni á Grenivík kl. 10:00. Vegalengd í boði er 2,5 km. Bolurinn í ár er appelsínugulur úr "dry fit" gæðaefni og er með V-hálsmáli. Skráningagjald er 1.250 krónur, bolur og verðlaunapeningur innifalinn.  Verðinu er eins og áður stillt mjög í hóf til að gera sem flestum mögulegt að taka þátt.

 

Ný sveitarstjórn kom saman
þriðjudagur, 15 júní 2010

grytubakkahreppurNýkjörin sveitarstjórn Grýtubakkahrepps kom saman í fyrsta sinn 14. júní sl. en hana skipa Jóhann Ingólfsson, Jón Helgi Pétursson, Fjóla V. Stefánsdóttir, Ásta Fönn Flosadóttir og Sigurður Bjarni Jóhannsson. Dagskrárefni fundarins var kjör oddvita og ráðning sveitarstjóra. Jóhann Ingólfsson var kjörinn oddviti og Jón Helgi Pétursson varaoddviti. Samþykkt var að ganga til viðræðna við Guðnýju Sverrisdóttur um áframhald á starfi hennar sem sveitarstjóri Grýtubakkahrepps.

 

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 13 - 15 af 350

Gisting
Veitingar
Afþreying
 

33fe178660b3bagrenilundur5.jpg
Skoða myndasafn

Allar tilkynningar
Allir viðburðir

Grýtubakkahreppur - Sími: 463-3159 - Fax: 463-3269 - Netfang: sveitarstjori@grenivik.is