Mánudagur 6. september
Ávarp sveitarstjóra
Um sveitarfélagið
Stofnanir
Nefndir og ráð
Fundargerðir
Gjaldskrár
Samþykktir og reglur
Ársreikningar
Eyðublöð
Ferðaþjónusta
Gisting
Veitingar
Afþreying
Ágúst 2010

Nú líður að því að skóli hefjist og vonandi koma allir kátir og glaðir undan sumrinu. Tveir nýir kennarar hafa verið ráðnir við Grenivíkurskóla eða þeir Þorgeir Finnsson og Stefán Guðnason en Stefán kemur til með að kenna íþróttir.  Eru þeir báðir boðnir velkomnir til starfa. Guðrún Árnadóttir og Edda Björnsdóttir eru í barnsburðarleyfi og Edda Línberg er farin til annarra starfa.

Allir pistlar
Morgunblaðið
Vísir
Svæðisfréttir RÚV
Veðurspá
Færð á vegum
Innanlandsflug
Símaskrá
Senda SMS
Leit á vefnum
 
Menningarminjadagur 5. sept.nk.
miðvikudagur, 01 september 2010

Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn sunnudaginn 5. september nk. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Í tilefni dagsins mun Sigurður Bergsteinsson minjavörður Norðurlands eystra leiða gesti um hinn forna verslunarstað Gásir við Eyjafjörð kl. 14:00.
Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Dagskrá menningarminjadagsins má finna í heild á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins, www.fornleifavernd.is

Grenivíkurskóli settur 25. ágúst
þriðjudagur, 24 ágúst 2010

grenivikurskoliGrenivíkurskóli verður settur með formlegum hætti miðvikudaginn 25. ágúst klukkan 16:00. Nemendur, foreldrar/forráðamenn og aðrir velunnarar skólans eru hjartanlega velkomnir. Hefðbundin skólasetning fer fram í íþróttasal skólans. Eftir athöfnina fara nemendur í sínar heimastofur og fá frekari upplýsingar um skólastarfið hjá sínum umsjónarkennara.

Fjör á Grenivíkurgleði
mánudagur, 16 ágúst 2010

gledi_2010Grenivíkurgleðin fór vel fram um helgina og mikið var um að vera. Jóhann Ingólfsson oddviti setti Grenivíkurgleðina á föstudagskvöld á tjaldstæðinu í afar mildu og  góðu veðri. Kynning var á grillmat frá Norðlenska og Bautanum og drykkir voru í boði Vífilfells. Hljómsveitin Hundur í óskilum skemmti fólki konunglega á öllum aldri. Haldin var söngkeppni fyrir börn og hljómsveitin Big Band Benna Sig. spilaði fram á nótt á tjaldstæðinu. Sögufélag Grýtubakkahrepps hélt ljósmyndasýninguna „Horfin hús“ í Grenivíkurskóla báða dagana. Á laugardag hélt fjörið áfram þrátt fyrir rigningu, grillað var fyrir börnin í boði Jónsabúðar, hoppukastalar voru opnir, boðið var upp á andlitsmálun, Einar einstaki sýndi töfrabrögð og fleira. Seinni partinn var haldið gamaldags skúrball í Útgerðarminjasafninu þar sem harmonikkutónlistin ómaði og boðið var upp á harðfisk. Eftir að stytti upp um sexleytið fór fólk að tínast á tjaldstæðið á ný og tók til við að grilla. Lilli klifurmús og Mikki refur kíktu í heimsókn og heilsuðu upp á börnin, Gói og Jói tróðu upp, varðeldur var tendraður og Benni, Dóri og fleiri stjórnuðu lautarsöng, flott flugeldasýning og hljómsveitin Big Band Benna Sig. hélt uppi stuðinu á tjaldstæðinu fram á nótt. (Myndir frá Grenivíkurgleðinni eru komnar inn í myndasafn síðunnar.)

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 3 af 350

Gisting
Veitingar
Afþreying
 

IMG_0320_477200.jpg
Skoða myndasafn

Allar tilkynningar
Allir viðburðir

Grýtubakkahreppur - Sími: 463-3159 - Fax: 463-3269 - Netfang: sveitarstjori@grenivik.is