Please update your Flash Player to view content.

Pistillinn

Apríl 2013.

Á síðasta fundi í sveitarstjórn Grýtubakkahrepps var ársreikningur Grýtubakkahrepps fyrir árið 2012 samþykktur. Rekstrarniðurstaða af sveitarsjóði A hluta var kr. 16.668.000,- í hagnað og af samstæðunni kr. 16.751.000,- í hagnað. Er þetta meiri hagnaður en hefur verið mörg síðastliðin ár. Hluti af honum kemur til af söluhagnaði. Töluvert meira fór í snjómokstur og sorpmál en reiknað var með í áætlun en að sama skapi voru útsvarstekjur hærri þannig að niðurstöðutölur voru í samræmi við áætlun.

Nánar...

Opnun á gámaplani


Frá og með fimmtudeginum 26. júlí nk. verður gámaplanið á Grenivíkurhólum opnað fyrir móttöku.
Fyrst um sinn verður móttakan opin sem hér segir:
Þriðjudaga frá kl. 16:00 til 17:00.
Fimmtudaga frá kl 15:00 til 17:00.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum, vinsamlega hafið samband við Guðna í síma 892-5033 eða Sigga í síma 891-6288.