Tjaldstæði

Tjaldstæði Grenivík
við Kirkjuveg
Sími: 414-5420
Netfang: bjornandri@grenivik.is

Umsjónarmaður: Björn Andri Ingólfsson, gsm: 620-5420.

Tjaldstæðið á Grenivík er við Kirkjuveg, rétt neðan við sundlaug Grýtubakkahrepps og Grenivíkurskóla. Þar er nýtt aðstöðuhús, byggt árið 2011 með rennandi köldu vatni, snyrtingum, einnig fyrir fatlaða, vöskum með heitu og köldu vatni til að þvo upp leirtau. Aðgangur er að rafmagni á tjaldstæðinu, rólur og sandkassi fyrir börnin, annars er stutt að fara á leiksvæðið við Grenivíkurskóla.

Umsjónarmaður íþróttamiðstöðvar og starfsfólk sundlaugar sér um að þjónusta tjaldstæðið á afgreiðslutíma sundlaugarinnar.

Gestir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við umsjónarmann eða starfsfólk sundlaugar við komu á tjaldstæðið.

Gjaldskrá - Aðrar gjaldskrár

 

Uppfært febrúar 2024