|
Lausaganga búfjár í Grýtubakkahreppi |
|
|
|
þriðjudagur, 03 nóvember 2009 |
|
Auglýsing um lausagöngu búfjár í Grýtubakkahreppi.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps minnir á bann við lausagöngu búfjár í Grýtubakkahreppi á Grenivíkurleið, vegi nr 83, þ.e. á vegsvæðum og opnum svæðum að þeim, samkvæmt heimild í lögum um búfjárhald nr. 103/2002. Bannið gildir frá 15. október til 15. maí árið á eftir, nema bann við lausagöngu hrossa gildir allt árið. Búfjáreigendur eru minntir á þá miklu hættu sem skapast ávallt fyrir vegfarendur er féð gengur laust á vegsvæðum og ábyrgð búfjáreigenda er mikil ef slys verða meðan bannið gildir.
Sveitarstjóri.
|