|
Heimasíðan www.grenivik.is er hugsuð fyrir þá sem vilja fylgjast með fréttum úr sveitarfélaginu og því sem um er að vera í byggðarlaginu. Á upphafssíðu er að finna tengingar á ýmsa vefi sem tengjast sveitarfélaginu svo og upplýsingar um sveitarfélagið, fyrirtæki og þjónustu sem býðst á staðnum. Síðan er hönnuð með það fyrir augum að vera auðveld í notkun og einfalt og fljótlegt á að vera að nálgast upplýsingar sem á henni eru að finna.
Grýtubakkahreppur er fallegt og snyrtilegt sveitarfélag í fögru umhverfi og náttúru. Þar eru fjölmargir áhugaverðir staðir sem ástæða er að veita athygli. Hátt þjónustustig er í Grýtubakkahreppi. Þar er nýtt dvalarheimili fyrir aldraða, nýr leikskóli, nýlegur grunnskóli, sundlaug, íþróttahús, góð verslun, góð bankastofnun og aðeins 30 mín. akstur er til Akureyrar.
Sveitarfélagið er því ákjósanlegur staður til að búa á, ekki síst fyrir fjölskyldu- og barnafólk.
Verið velkomin! Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri
|