Mánudagur 6. september
Ávarp sveitarstjóra
Um sveitarfélagið
Stofnanir
Nefndir og ráð
Fundargerðir
Gjaldskrár
Samþykktir og reglur
Ársreikningar
Eyðublöð
Ferðaþjónusta
Gisting
Veitingar
Afþreying
Ágúst 2010

Nú líður að því að skóli hefjist og vonandi koma allir kátir og glaðir undan sumrinu. Tveir nýir kennarar hafa verið ráðnir við Grenivíkurskóla eða þeir Þorgeir Finnsson og Stefán Guðnason en Stefán kemur til með að kenna íþróttir.  Eru þeir báðir boðnir velkomnir til starfa. Guðrún Árnadóttir og Edda Björnsdóttir eru í barnsburðarleyfi og Edda Línberg er farin til annarra starfa.

Allir pistlar
Morgunblaðið
Vísir
Svæðisfréttir RÚV
Veðurspá
Færð á vegum
Innanlandsflug
Símaskrá
Senda SMS
Leit á vefnum
 
Febrúar 2010 Print Senda
mánudagur, 01 mars 2010

Á fundi sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps þann 1. febrúar sl. var þriggja ára fjárhagsáætlun Grýtubakkahrepps samþykkt. Í áætluninni er gert ráð fyrir framkvæmdum 2011 fyrir 22 milljónir kr. og ber þar hæst malbikun á Höfðagötu, Sælandi og Lækjarvöllum. Á árinu 2012 eru áætlaðar 17 milljónir kr. í framkvæmdir og ber þar hæst endurbætur á tjaldstæði og kaup á tækjum í áhaldahús og 2013 eru áætlaðar endurbætur á sundlaug og  vatnsbúskap.

gudnyUm næstu áramót er gert ráð fyrir að málefni fatlaðra flytjist yfir til sveitarfélaganna. Grýtubakkahreppur er of lítið sveitarfélag til að geta eitt og sér tekið við þessum málaflokki þannig að sveitarstjórn þarf að finna önnur úrræði. Trúlega verðu reynt að semja við Akureyri um þjónustu eða myndað byggðasamlag um verkefnið.
Tvö góð þorrablót voru haldin á þorra, hið árlega glæsilega þorrablót Höfðhverfinga  og  þorrablót á Grenilundi. Bæði þorrablótin voru þeim sem að þeim stóðu  til mikils sóma.
Nú er fiskvinnsla hafin aftur í frystihúsinu á Grenivík og búið að ráða tæplega 20 manns í vinnu.  Ekki er annað vitað en að vinnslan gangi samkvæmt áætlun. Hvað sem framtíðin ber í skauti sér er enn um sinn mikils um vert að sjávarútvegur og fiskvinnsla sé öflug á stöðum eins og Grenivík þar sem þessi byggðarlög hafa byggst upp vegna nálægðar við fiskimiðin.
Undirrituð verður í fríi frá 3. til 18. mars og munu Fjóla oddviti og Sigrún Björnsdóttir leysa úr málum meðan á fríinu stendur.

Grenivík í febrúar 2010,
Guðný Sverrisdóttir.

 


Gisting
Veitingar
Afþreying
 

melgatatre_253249.jpg
Skoða myndasafn

Allar tilkynningar
Allir viðburðir

Grýtubakkahreppur - Sími: 463-3159 - Fax: 463-3269 - Netfang: sveitarstjori@grenivik.is