Nú líður að því að skóli hefjist og vonandi koma allir kátir og glaðir undan sumrinu. Tveir nýir kennarar hafa verið ráðnir við Grenivíkurskóla eða þeir Þorgeir Finnsson og Stefán Guðnason en Stefán kemur til með að kenna íþróttir. Eru þeir báðir boðnir velkomnir til starfa. Guðrún Árnadóttir og Edda Björnsdóttir eru í barnsburðarleyfi og Edda Línberg er farin til annarra starfa.
Jónsabúð, Túngötu 3, Grenivík sími 463-3236 Jónsabúð er eina matvöruverslunin í Grýtubakkahreppi, staðsett miðsvæðis á Grenivík í húsi sem Kaupfélag Eyfirðinga reisti árið 1982. Þegar KEA hætti rekstri árið 1996 tóku hjónin Jón Stefán Ingólfsson og Jórlaug Daðadóttir húsið á leigu og héldu áfram verslunarrekstri.
Í Jónsabúð er veitingasala, skyndibiti s.s. hamborgarar, pizzur (á föstudögum), samlokur, pylsur o.þ.h. Einnig er hægt að fá kaffisopa. Þar er hægt að fá allar daglegar neysluvörur sem og ýmsar nauðsynjar, sbr. ritföng, gjafavöru og ýmislegt fleira.
Afgreiðslutími:
Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00-18:00
Föstudaga frá kl. 09:00-20:00
Laugardaga frá kl. 12:00-17:00
Sunnudaga frá kl. 13:00-16:00.
Miðgarðar Grenivík sími 860-9999
www.midgardar.net
Miðgarðar hafa í gegnum árin séð um matarveislur fyrir t.d. ættarmót og aðra viðburði með aðstoð Bautans á Akureyri og hafa þær verið haldnar í sal Grenivíkurskóla.
Þjónustuhúsið í Laufási, Grýtubakkahreppi
Opið er daglega frá 15. maí til 15. september frá kl. 9-18.
Á veturna er opið eftir eftir samkomulagi.
Í þjónustuhúsi er minjagripaverslun og veitingastaður þar sem hægt er að kaupa þjóðlegar veitingar.
Hægt er að leigja Gamla prestshúsið í Laufási fyrir fundi og veislur.
Sími: 463 3196 eða 869 3665
Umsjónarmaður í Laufási er Hólmfríður Erlingsdóttir
Sími: 869 3665