Mánudagur 6. september
Ávarp sveitarstjóra
Um sveitarfélagið
Stofnanir
Nefndir og ráð
Fundargerðir
Gjaldskrár
Samþykktir og reglur
Ársreikningar
Eyðublöð
Ferðaþjónusta
Gisting
Veitingar
Afþreying
Ágúst 2010

Nú líður að því að skóli hefjist og vonandi koma allir kátir og glaðir undan sumrinu. Tveir nýir kennarar hafa verið ráðnir við Grenivíkurskóla eða þeir Þorgeir Finnsson og Stefán Guðnason en Stefán kemur til með að kenna íþróttir.  Eru þeir báðir boðnir velkomnir til starfa. Guðrún Árnadóttir og Edda Björnsdóttir eru í barnsburðarleyfi og Edda Línberg er farin til annarra starfa.

Allir pistlar
Morgunblaðið
Vísir
Svæðisfréttir RÚV
Veðurspá
Færð á vegum
Innanlandsflug
Símaskrá
Senda SMS
Leit á vefnum
 
Gisting Print Senda

dsc03515Miðgarðar Grenivík sími 860-9999
   www.midgardar.net

Þegar komið er inn á Grenivík er haldið áfram beint niður sömu götu (Miðgarðaveg) alveg á enda þar sem gistiheimilið er á vinstri hönd.
Hægt er að velja á milli þriggja mismunandi gistimöguleika:
Hamraborgin er nýleg bygging með fjórum stórum herbergjum. Hvert herbergi hefur sér snyrtingu með sturtu. Í hverju herbergi er flatskjár, útvarp og ísskápur.
Miðgarðar er elsta hús Grenivíkur og er það einstök upplifun að gista í þessu húsi. Efri hæð hússins hefur að geyma fimm herbergi og eru tvö rúm í hverju. Á neðri hæð hússins er salerni, sturta, setustofa, eldhús og salur. Neðri hæðin er aðgengileg gestum Hamraborgarinnar.
Í Grenivíkurskóla hafa Miðgarðar sex skólastofur undir svefnpokagistingu til umráða yfir sumartímann sem hægt er að útfæra eftir þörfum. Hægt er að koma allt að tíu manns í hverja stofu. Hentugt fyrir stærri fjölskyldur og hópa. Boðið er upp á dýnur með laki. Á skólasvæðinu er líkamsrækt, sundlaug og sturtuaðstaða, sem og leiksvæði fyrir börn.

Athugið að ekki verður boðið upp á morgunverð þetta sumarið en það er góð eldunaraðstaða á Miðgörðum sem og aðgengi að ísskáp, kaffivél og fleiru.

hleskogar1
Ferðaþjónustubýlið Hléskógar
sími 863-3112

  www.hleskogar.is

Hléskógar eru staðsettir við austanverðan Eyjafjörð í Grýtubakka-
hreppi, við þjóðveg 83 í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri og aðeins 4 mínútna akstursfjarlægð frá Grenivík. Í Hléskógum er boðið upp á gistingu í uppbúnum rúmum og tjaldstæði. Um er að ræða þrjú tveggja manna herbergi með aðgangi að sameiginlegu baðherbergi, setustofu og eldhúsi, ásamt morgunmat. Þessa aðstöðu er hægt að leigja sem íbúð fyrir sex manns. Tjaldstæðið er fyrir framan bæinn og þar er aðgangur að rafmagni og eldunaraðstöðu, auk þess sem tjaldgestir hafa aðgang að húsdýragarðinum sem rekinn er á staðnum.


Tjaldstæði sími 463-3218/893-1887


Tjaldstæðið á Grenivík er við Kirkjuveg, rétt neðan við sundlaug Grýtubakkahrepps og Grenivíkurskóla. Þar er rennandi kalt vatn, snyrting, aðgangur að rafmagni, rólur og sandkassi fyrir börnin, annars er stutt að fara á leiksvæðið við Grenivíkurskóla.
Húsvörður íþróttamiðstöðvar og starfsfólk sundlaugar sér um að þjónusta tjaldstæðið á afgreiðslutíma sundlaugarinnar.
Gjaldskrá tjaldstæðisins er eftirfarandi:
Gjald fyrir hverja einingu (tjald, fellihýsi, hjólhýsi, húsbíll) er kr. 1.000.- fyrir nóttina.
Tekið er 2.000.- kr. gjald fyrir rafmagnsskott sem endurgreiðist við brottför.  
Gestir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við húsvörð eða starfsfólk sundlaugar við komu á tjaldstæðið.



Gisting
Veitingar
Afþreying
 

hordur_157151.jpg
Skoða myndasafn

Allar tilkynningar
Allir viðburðir

Grýtubakkahreppur - Sími: 463-3159 - Fax: 463-3269 - Netfang: sveitarstjori@grenivik.is